×
Við undirrituð mótmælum staðsetningu fyrirhugaðrar þjónustumiðstöðvar við Seljalandsfoss.
Svala S.
started this petition to
Umhverfisstofnun, Skipulagsstofnun og sveitarstjórn Rangárþings eystra
Við vinir Seljalandsfoss skorum á Umhverfisstofnun, Skipulagsstofnun og sveitarstjórn Rangárþings eystra að hverfa frá því að koma þjónustumiðstöð og öðrum mannvirkjum fyrir á þeim stað sem núverandi deiliskipulagstillaga gerir ráð fyrir. Við viljum vernda þessa einstæðu og fögru landslagsheild sem nú er nánast ósnortin milli fossanna Gljúfrabúa og Seljalandsfoss en verður spillt nái þessi deiliskipulagstillaga í gegn. Komum í veg fyrir hörmulegt og óþarft umhverfisslys, óafturkræft til framtíðar, og finnum þessum mannvirkjum annan stað.
Posted
(Updated )
Report this as inappropriate
There was an error when submitting your files and/or report.